Bergvin Kristjánsson

ID: 14404
Fæðingarár : 1841
Fæðingarstaður : S. Múlasýsla
Dánarár : 1880

Bergvin Kristjánsson fæddist árið 1841 í S. Múlasýslu. Dáinn í Minnesota 21. mars, 1880. Frímann vestra.

Maki: 16. júlí, 1869 Helga Runólfsdóttir f. 1. september, 1851, d. í Manitoba 23. ágúst, 1927.

Börn: 1. Kristjana f. 1870 var dóttir Kristjáns Með Helgu: 2. Þórdís f. 27. ágúst, 1875.

Helga fór vestur til Minnesota með Þórdísi árið 1877, samferða foreldrum sínum þeim Runólfi Jónssyni og Margréti Bjarnadóttur. Bergvin fór vestur þangað ári seinna með Kristjönu, dóttur sína. Þau settust að í Lincoln sýslu.