ID: 14752
Fæðingarár : 1851
Fæðingarstaður : S. Múlasýsla
Dánarár : 1928

Árni Sveinsson

Guðrún Helga Jónsdóttir
Árni Sveinsson fæddist 6. nóvember, 1851 í S. Múlasýslu. Dáinn í Glenboro 7. mars, 1928.
Maki: Guðrún Helga Jónsdóttir f. 26. desember, 1855, d. 27. júní, 1938.
Börn: 1. Jón 2. Sveinn 3. Guðný 4. Ingibjörg 5. Albert 6. Guðfinna 7. Anna 8. Sigrún 9. Valdimar d. 17. júlí, 1923 10. Kristján.
Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og þaðan áfram til Nýja Íslands. Bjuggu þar fram á mitt ár 1880 en fóru þá til Winnipeg og dvöldu þar til ársins 1882 en þá nam Árni land í Argylebyggð þar sem þau bjuggu alla tíð.
