Guðrún Snjólaug Jónsdóttir fæddist 6. maí, 1867 í Berufirði í S. Múlasýslu. Dáin 6. júlí, 1947.
Maki: 5. desember, 1885 í Grafton, N. Dakota: Hermann Guðmundsson f. 9. nóvember, 1860 í Húnavatnssýslu, d. á Winnipeg Beach í Manitoba 17. desember, 1919.
Börn: 1. Magnús Helgi f. 23. febrúar, 1888 2. Anna Helga Ingibjörg f. 4. febrúar, 1889 3.William Frederick f. 28. nóvember, 1891 4. Guðný Hermína f. 7. maí, 1895 5. Björg Violet f.12. maí, 1897 6. Rósa May f. 23. maí, 1899 7. Magnús Alexander f. 16. mars, 1901 8. Ásta Herdís Friðrikka f. 30. maí, 1904 9. Wildóra Anna Magnolia f. 20. júní, 1907 10. Jón Helgi f. 26. janúar, 1909.
Snjólaug var dóttir Jóns Eiríkssonar og Guðnýjar Magnúsdóttur sem vestur fluttu til Nova Scotia árið 1876. Þaðan lá svo leiðin til N. Dakota árið 1879. Hermann fór vestur árið 1883 með móður sinni, Ingibjörgu Sigfúsdóttur og systrum sínum, Málfríði og Jónínu. Þau settust að í N. Dakota þar sem Hermann kynntist konu sinni. Þau fluttu norður til Manitoba árið 1886 og settust að á Winnipeg Beach. Bjuggu þar alla tíð.
