Bjarni Ingimundarson

ID: 15106
Fæðingarár : 1860
Fæðingarstaður : Kjósarsýsla

Bjarni Ingimundarson og Guðrún Þorsteinsdóttir

Bjarni Ingimundarson var fæddur 22. september, 1860 í Eyjum í Kjósarsýslu.

Maki: 1888 Guðrún Þorsteinsdóttir var fædd 11. september, 1861 á Seltjarnarnesi í Gullbringusýslu.

Börn: 1. Þorsteinn 2. Sigurður 3. Birgitta 4. Guðlaug Gunnhildur d. 6. maí, 1915

Þau fóru sama ár 1886 vestur um haf  til Winnipeg í Manitoba og fóru strax í Þingvallabyggðina í Saskatchewan.  Árið 1894 fluttu þaðan norður að Manitobavatni og settust að í sveit ekki langt suðar af Kinosota. Ekki líkaði þeim þar og reyndu næst á lítilli eyju í Manitobavatni, Bird´s Island sem er skammt frá Narrows. Þar voru þau stutt því þau fluttu á Big Point árið 1897 og hófust strax handa við búskap. Þau tóku strax virkan þátt í uppbyggingu samfélagsins og lögðu sitt af mörkum. Bjarni var t.d. lengi féhirðir Herðubreiðarsafnaðar.