Halldór Jónsson

ID: 15211
Fæðingarár : 1865
Dánarár : 1952

Halldór Jónsson Mynd VÍÆ I

Halldór Jónsson fæddist í N. Múlasýslu 25. júní, 1865. Dáinn í Vatnabyggð 12. desember, 1952. Austfjörð vestra.

Maki: 14. febrúar, 1895 Margrét Einarsdóttir f. í Breiðdal í S. Múlasýslu 24. jabúar, 1837.

Börn: 1. Sigurjón f. 24. september, 1897 2. Helga 3. Vilborg 4. Einar Halldór 5. Sigríður 6. Kristbjörg 7. Victoria 8. Soffía (Sofia).

Halldór fór til Vesturheims árið 1887, fyrst til N. Dakota. Færði sig svo norður til Gladstone í Manitoba og þaðan árið 1910 til Mozart í Saskatchewan. Bjó þar síðan.  Margrét var dóttir Einars Eiríkssonar og Helgu Marteinsdóttur. Þau fluttu vestur árið 1887 og settust að nálægt Akra í N. Dakota.