ID: 2641
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1913
Guðmundur Jóhannesson: Fæddur í Húnavatnssýslu. Dáinn 1913.
Maki: 1) Sigríður Ólafsdóttir, dáin 1899. 2) Karítas Jónsdóttir f. 18. apríl, 1864. Dáin 4. febrúar, 1927. Hún var ekkja eftir Þórarinn Guðmundsson sem dó 1907.
Börn: Karítas kom með börn sín fjögur vestur 1910. 1. Margrét f. 1888 2. Alexander f. 1892 3. Sara f. 1895 4. Jónína f. 1900.
Guðmundur fór vestur ekkjumaður árið 1899 og vann við fiskveiðar í Winnipegosis í 7 ár. Fór þá heim til Íslands og var þar í 3 ár. Kvæntist þar í annað sinn 1910 og fór til Vesturheims sama ár.
