
Louise Guðfinna Jónsdóttir Mynd VÍÆ II
Louise Guðfinna Jónsdóttir fæddist í Mountain, N. Dakota 10. október, 1884. Louise G Thorlakson og seinna Gislason vestra.
Maki: 20. júlí, 1916 Þorsteinn Jónsson f. í Skagafjarðarsýslu 11. maí, 1874. Dáinn í Manitoba 19. júlí, 1955. Thorsteinn J Gislason vestra.
Börn: Fóstursonur: Lárus Sigurður Fjelsted f. 23. janúar, 1924.
Louise var dóttir Jóns Þorlákssonar (J.G.Thorlakson) og Petrínu Guðnadóttur sem bjuggu suðvestur af Mountain í N. Dakota. Eftir aldamótin fluttu þau norður í Brownbyggð í Manitoba. Þorsteinn flutti vestur árið 1883 með foreldrum sínum, Jóni Gíslasyni og Sæunni Þorsteinsdóttur. Þau komu til New York og fóru strax til Winnipeg og þaðan í Pembina sýslu í N. Dakota. Þau settust að suðaustur af Hallson en eftir andlát Jóns árið 1893, þraukaði Sæunn á jörðinni en 1899 flutti hún með börnum sínum í Brown byggð í Manitoba. Þorsteinn fór í verslunarskóla í Grand Forks og keypti verslun í Brown árið 1909 og rak hana til ársins 1927 en jafnframt stundaði hann landbúnað. Louise gafst tækifæri á menntun, hún lauk tónlistarnámi í St. Peter í Minnesota og þriggja ára hjúkrunarnámi í St. Paul í Minnesota árið 1913. Var organisti Guðbrandssafnaðar í Brown, kenndi á píanó og stundaði hjúkrun.
