Benedikt Hannesson

ID: 15642
Fæðingarár : 1818
Fæðingarstaður : Rangárvallasýsla
Dánarár : 1860

Benedikt Hannesson fæddist 13. júlí, 1818 í Rangárvallasýslu. Dáinn 1860 í Omaha í Nebraska.

Maki: 6. október, 1846 Ragnhildur Stefánsdóttir f. 24. október, 1817 í A. Skaftafellssýslu. Dáin 22, maí, 1875.

Börn: 1. Efraim f. 6. nóvember, 1853 í Danmörku. Dáinn 21. september, 1878. 2. María f. 1. júlí, 1859 í Omaha, Nebraska. Dáin 23. nóvember, 1945.

Benedikt og Ragnhildur fóru frá Vestmannaeyjum til Kaupmannahafnar árið 1952 en þau höfðu tekið Mormónatrú ári áður. Þau dvöldu í Danmörku til ársins 1859 en þá fóru þau vestur um haf til Bandaríkjanna. Þau fóru til Omaha í Nebraska og undirbjuggu flutning til Utah. Þar lést Benedikt en Ragnhildur fór með börnin tvö til Salt Lake City í Utah og kom þangað 1862.