ID: 15694
Fæðingarár : 1876
Fæðingarstaður : Gullbringusýsla
Dánarár : 1967
Einar Jónsson fæddist 8. mars, 1876 í Gullbringusýslu. Dáinn í Salt Lake City 2. febrúar, 1967.
Maki: 25. desember, 1893 Gertrude O´Neil
Börn: upplýsingar vantar.
Einar fór vestur til Utah með Sigríði Bjarnadóttur, fóstru sinni og Jakobi Baldvin Jónssyni trúboða árið 1881. Bjó hjá þeim í Cleveland þar til hann náði táningsaldri. Fór þá að vinna fyrir sér í nærliggjandi héruðum. Þau Gertrude bjuggu um skeið í Hiawatha í Utah en fluttu seinna til Salt Lake City.
