Jónína Ásgrímsdóttir

ID: 15737
Fæðingarár : 1885
Fæðingarstaður : Árnessýsla
Dánarár : 1967

Jónína Friðsemd Ásgrímsdóttir fæddist í Árnessýslu 12. febrúar, 1885. Dáin í Price í Utah 13. febrúar, 1967.

Maki: Halldór Jónsson f. 1. mars, 1856 í V. Skaftafellssýslu,d. 11. janúar, 1936 í Cleveland í Utah.

Börn: Utan hjónabands 1. Engilbert f. 4. maí, 1912. Með Halldóri 1. Svava 2. Laufey. Jónína og Halldór fóstruðu Guðmund Þorsteinsson f. 13. febrúar, 1893 í Mýrasýslu.

Jónína flutti vestur til Spanish Fork í Utah með son sinn, Engilbert Jónsson og móður sína Gróu Hróbjartsdóttur árið 1913. Fyrir hópnum fór Halldór Jónsson, trúboði frá Utah en hann og Jónína gengu í hjónaband þegar vestur var komið. Þau bjuggu í Clveland í Utah.