Guðmundur Eiríksson

ID: 15809
Fæðingarár : 1878
Fæðingarstaður : Rangárvallasýsla
Dánarár : 1938

Guðmundur Eiríksson fæddist í Rangárvallasýslu 8. október, 1878. Dáinn 1938 í San Diego.

Maki: Oddfríður Halldórsdóttir f. í Hnappadalssýslu 30. maí, 1872, d. 1956. Þau skildu.

Börn: 1. Dorothea f. 1913, d. 1964.

Guðmundur lærði ljósmyndun í Reykjavík og þar kynntist hann Oddfríði. Hann flutti vestur til Kanada árið 1898 og fór til Bresku Kólumbíu. Oddfríður fór til Danmerkur sama ár og þaðan vestur til Kanada þar sem hún giftist Guðmundi. Þau fluttu til Spanish fork um aldamótin og bjuggu þar nokkur ár. Guðmundur var þar með ljósmyndastofu og littla verslun. Þaðan lá svo leiðin til San Diego þar sem Guðmundur stundaði fasteignasölu.