Guðný Ingjaldsdóttir

ID: 15830
Fæðingarár : 1857

Guðný Ingjaldsdóttir fæddist árið 1857.

Heimild, Icelanders of Utah í Utah segir hana hafa farið vestur til Spanish Fork í Utah árið 1883 og manntal í Bandaríkjunum árið 1900 segir hana ekkju, hafi gifst árið 1887 og átt fimm börn.

Nafn hennar er uppspuni konu af íslenskum ættum sem þangað kom og var í Utah þegar manntal var tekið í Bandaríkjunum árið 1900. En þaðan hverfur hún skömmu síðar og er hvergi getið í öðrum heimildum í Utah. Verið getur að fleiri einstaklingar hafi leikið sama leikinn, eitthvað svo mikilvægt knúði þá til að villa á sér heimildir, en hvað?

Hér er mynd úr skránni, Icelanders of Utah. Fremst eru númer einstaklinga og sést að Guðný hefur númerið 179. Fyrir aftan nafn hennar er fæðingardagur og ár en þar næst hefði átt að standa nafn fæðingastaðar eða heimilisfang á brottfarardegi. Hvorugt var uppgefið við skráningu Guðnýjar heldur einungis ártalið 1883 en það ár er hún sögð hafa komið til Spanish Fork. í næsta dálk er skráð dagsetning brottfarar af Íslandi og í aftasta dál er skráð dagsetning skírnar.