Friðbjörn Árnason

ID: 16503
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1892
Fæðingarstaður : Hensel

Friðbjörn Árnason fæddist í Hensel í N. Dakota 3. maí, 1892. Fridbjorn A. Bjornson vestra.

Maki: Guðlaug Kristjánsdóttir f. í Garðarbyggð í N. Dakota 15. mars, 1892.

Börn: 1. Kristján f. 14. desember, 1916 2. Árni f. 20. júní, 1918 3. Friðbjörn William f. 26. júní, 1921 4. Guðrún f. 12. júlí, 1922 5. Anna f. 21. ágúst, 1929 6. Margrét f. 5. júní, 1933.

Friðbjörn var sonur Árna Friðbjarnarsonar og Guðrúnar Magnúsardóttur, landnema í N. Dakota. Guðlaug var dóttir Kristjáns Samúelssonar úr Dalasýslu og Önnu Björnsdóttur sem bjuggu í Garðarbyggð í N. Dakota. Friðbjörn var bóndi nærri Mountain í N. Dakota alla tíð.