Edvard H Björnsson

ID: 16507
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1904
Dánarár : 1958

Edvard Hjálmar Björnsson Mynd VÍÆ I

Edvard Hjálmar Björnsson fæddist 18. mars, 1904 í Minneota í Minnesota. Dáinn í Minneapolis 24. október, 1958.

Maki: 16. júlí, 1934 Elín Kristjánsdóttir f. í Red Deer í Alberta 11. mars, 1907.

Börn: 1. Hjálmar Kristján f. í Minneapolis 20. nóvember, 1937.

Edvard var sonur Gunnars Björnssonar og Ingibjargar Ágústu Jónsdóttur. Hann lauk námi í Minneota High School árið 1922 og B.A. prófi frá Minnesota University 1927. Stundaði að því loknu nám í hagfræði við skólann. Faðir hans var lengi ritstjóri Minneota Mascot og lærði Edvard prentun hjá honum. Meir um Edvard í Atvinna að neðan. Elín var dóttir Kristjáns Jónassonar og Halldóru Bergþórsdóttur er vestur fluttu árið 1894.

Atvinna :