
Paul P Goodman Mynd VÍÆ I
Paul Wilberg Pálsson fæddist í Selkirk 25. febrúar, 1905. Dáinn í Winnipeg 1. október, 1959.
Maki: 8. nóvember, 1930 Lena Ágústsdóttir f. 8. nóvember, 1930. Polson fyrir hjónaband.
Börn: 1. Sue Elizabeth f. 7. maí, 1933 2. Pauline f. 4. nóvember, 1942.
Paul var sonur Páls Guðmundssonar Goodman og Ingiríðar Magnúsdóttur, sem vestur fluttu um 1900. Þau settust að í Selkirk í Manitoba þar sem Paul ólst upp. Hann gekk þar í skóla, hélt áfram námi og varð rafvirki. Árið 1927 stofnaði hann fyrir tæki sem sá um raflagnir í hús og eftirlit með þeim. Paul þótti góður íshokkí leikmaður og spilaði sem atvinnumaður í nokkur ár. Hann bjó í Winnipeg um árabil og sat í ýmsum nefndum borgarstjórnar. Hann var formaður nefndar, sem skipulagði umferð í borginni og fegrun tveggja aðalgatna borgarinnar.
