Guðrún K Helgason

ID: 16797
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1895

Guðrún Kristjana Kristjánsdóttir Mynd VÍÆ I

Guðrún Kristjana Kristjánsdóttir fæddist við White Sand River í Saskatchewan 10. júní, 1895. Rúna Helgason vestra.

Ógift og barnlaus.

Guðrún var dóttir Kristjáns Jóhanns Helgasonar og Halldóru Jóhannesdóttur, landnema í Foam Lake byggð í Saskatchewan árið 1897. Guðrún ólst þar upp og var snemma áhugasöm um saumaskap. Hún fór til Wynyard árið 1925 og vann þar á saumastofu til ársins 1932. Fór þá til Foam Lake og bjó þar. Hún var í íslenska kvenfélaginu Sólskin og einnig kanadíska kvenfélaginu The Co-op Guild í Foam Lake.