Helgi Jóhannes Helgason fæddist í Churchbridge í Saskatchewan 21. júlí, 1891.
Maki: 28. september, 1915 Helga Gróa Guðbrandsdóttir f. í Churchbridge 22. febrúar, 1893.
Börn: 1. Guðbrandur f. 7. júlí, 1916 2. Kristján Pálmi f. 25. apríl, 1918 3. Jóhannes Valentine f. 14. febrúar, 1920 4. Anna Margrét f. 24. október, 1921 5. Halldóra f. 25. apríl, 1924 6. Agneta f. 12. júlí, 1927 7. Lillian Victoria f. 18. janúar, 1929.
Helgi var sonur Kristjáns Jóhanns Helgasonar og Halldóru Jóhannesdóttur, landnema í Foam Lake byggð. Foreldrar Helgu voru Guðbrandur Narfason og Anna Margrét Eiríksdóttir í Foam Lake. Helgi ólst upp í White Sands og Foam Lake. Hann lauk námi frá Landbúnaðardeild Manitobaháskóla árið 1914. Var svo bóndi í Foam Lake byggð og virkur í samfélagsmálum. Hann var 17 ár í sveitarstjórn, oddviti öll þau ár. Sat í safnaðarstjórn Foam Lake safnaðar og United Church of Foam Lake.
