ID: 16803
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1901
Fæðingarstaður : Manitoba

Magnús Alexander Hermannsson Mynd VÍÆ I
Magnús Alexander Hermannsson fæddist í Selkirk, Manitoba 16. mars, 1901. Alex Hermanson vestra.
Maki: 8. júní, 1923 Ólöf Sigurbjörg Ísfeld f. í Húsavík í Nýja Íslandi 23. desember, 1899.
Barnlaus.
Magnús var sonur Hermanns Guðmundssonar og Guðrúnar Snjólaugar Jónsdóttur er bjuggu á Winnipeg Beach í Manitoba. Þar ólst hann upp en flutti til Winnipeg árið 1916. Vann í fjöldamörg ár hjá Crescent Creamery Ltd þar í borg. Ólöf var dóttir Ágústs Eiríkssonar Ísfeld og konu hans, Ólínu Sigurbjargar Óladóttur. Ólöf vann verslunarstörf í Winnipeg áður en hún giftist.
