Tómas T Jónasson

ID: 16921
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1887

Tómas Tómasson fæddist 29. nóvember, 1887 að Engimýri í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi. Jónasson vestra.

Maki: 6. júní, 1912 Magnúsína Helga Jónsdóttir f. 11. desember, 1890. Helga Jónasson.

Börn; 1. Thelma Ingibjörg f. 10. mars, 1913 2. Florence Ágústína f. 10. mars, 1913 3. Jónína Guðrún f. 14. janúar, 1915 4. Helga Elísabet f. 9. október, 1916 5. Aðalheiður Kristín f. 22. janúar, 1919 6. Sesselja Grace f. 1. október, 1921 7. Tómas Aðalsteinn f. 7. október, 1925.

Tómas var sonur Tómasar Ágústs Jónassonar og Guðrúnar Egedía Jóhannsdóttur. Tómas Ágúst var albróðir Sigtryggs, föður Nýja Íslands. Tómas og Guðrún fluttu vestur til Manitoba árið 1876 og settust að í Fljótsbyggð ári síðar. Tómas yngri tók við búi föður síns en rak samhliða gistihús, vann stundum við skógarhögg og fiskflutninga í mörg ár. Foreldrar Magnúsínu Helgu voru Jón Borgfjörð Magnússon og Guðrún Eggertsdóttir.