Þorfinnur L Nýmundsson

ID: 16950
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1904
Fæðingarstaður : N. Dakota
Dánarár : 1977

Þorfinnur L Nýmundsson Mynd VÍÆ III

Þorfinnur Lawrence Nýmundsson fæddist í N. Dakota 26. maí, 1904. Dáinn í Vatnabyggð árið 1977. Thorfinnur L Josephson vestra.

Maki: 1. desember, 1927 Margrét Lilja Sigurðardóttir f. 8. nóvember, 1904, d. í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 2000. Margret L Josephson vestra.

Börn: 1. Jóhanna Bernice f. 28. nóvember, 1928 2. Clarence Valdimar f. 28. febrúar, 1933, d. 1. september, 1954 í bílslysi 3. Frederick Gylan f. 13. september, 1939 4. Conlin David f. 13. nóvember, 1944.

Þorfinnur var sonur Nýmundar Björnssonar og Þóru Guðmundsdóttur úr Strandasýslu. Þau fluttu vestur árið 1883 og fóru til N. Dakota. Fluttu í Vatnabyggð árið 1905. Margrét var dóttir Sigurðar Sölvasonar and Jóhönnu Stefánsdóttur, sem vestur fluttu árið 1899 og settust að nærri Mountain í N. Dakota.  Þau fluttu í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1905 og bjuggu nærri Wynyard.  Margrét og Þorfinnur bjuggu fyrst nærri Mozart en fluttu seinna nær Elfros. Þorfinnur var þar bóndi og tók mikinn þátt í samfélagsmálum.