
Lilja Jónasína Jónsdóttir Mynd VÍÆ IV
Lilja Jónasína Jónsdóttir fæddist 22. desember, 1915 í Geysisbyggð í Manitoba.
Maki: 1. október, 1941 Halldór Egill Gunnlaugsson f. í Hnausabyggð í Nýja Íslandi 24. september, 1914. Martin vestra.
Börn: 1. Jón Halldór f. 6. ágúst, 1942 2. Lilja Valdína f. 24. september, 1944 3. Gunnlaugur Sigmar f. 22. janúar, 1951 4. Pálína Una f. 23. desember, 1954 5. Melvin Douglas f. 20. febrúar, 1956.
Lilja var dóttir Jóns Pálssonar og Unu Friðnýjar Jónasdóttur landnema í Geysisbyggð. Lilja lauk prófi frá Manitobaháskóla árið 1936 og hélt tónlistarnáminu áfram í Toronto Conservatory of Music. Hlaut miklar viðurkenningar í námslok. Hún gerðist tónlistarkennari í Nýja Íslandi, æfði þar bæði kór fullorðinna svo og barna og unglinga. Halldór var sonur Gunnlaugs Guðmundssonar og Sigríðar Kristjónsdóttur, var bóndi í Nýja Íslandi og rak að auki sögunarmillu í Hnausabyggð.
