
Gyðríður Gísladóttir Mynd Reflections by the quills
Gyðríður Gísladóttir fæddist í Ísafjarðarsýslu 29. maí, 1891.
Maki: 23. ágúst, 1917 Jakob Jónsson fæddist í Skagafjarðarsýslu 14. maí, 1883.
Börn: 1. Gísli Marteinn f. 24. október, 1917 2. Stefán Gestur f. 21. mars, 1919 3. Solmonia Jóhanna Guðbjörg f. 28. júlí, 1924 4. Björg f. 28. júlí, 1924 5. Anna Margrét f. 26. ágúst, 1926 6. Einar Jón f. 10. ágúst, 1931.
Gyðríður fór vestur árið 1891 með foreldrum sínum, Gísla Árnasyni og Margrétu Sigurðardóttur. Jakob flutti til Vesturheims með foreldrum sínum árið 1898. Þegar þangað var komið hélt hann strax vestur í Vatnabyggð í Saskatchewan þar sem systir hans, Steinunn, bjó með manni sínum og börnum nærri Foam Lake.. Jakob vann fyrsta árið við smjörgerð í Churchbridge og svo við landbúnað í sveitinni nærri Foam Lake. Þar nam hann land áruð 1905 og sundaði búskap þar til ársins 1919. Þaðan lá leið hans á land nærri Wynyard þar sem hann hélt búskap áfram til ársins 1956. Sneri þá aftur til Foam Lake þar sem hann bjó til æviloka.
