
Sigurður Óskar Gestsson Mynd VÍÆ I
Sigurður Óskar Gestsson fæddist í Geysisbyggð í Manitoba 7. desember, 1896. Oddleifsson vestra.
Maki: 1. 15. október, 1919 Ólöf Anna Einarsdóttir f. 17. október, 1890 d. 22. nóvember, 1970.
Börn: 1. Þórey Jónína f. 1. september, 1920 2. Gestur Einar f. 23. október, 1922 3. Sigurður Óskar f. 15. október, 1925.
Sigurður ólst upp í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi og gerðist svo bóndi í Geysisbyggð. Flutti seinna í Árborg þar sem hann tók virkan þátt í samfélagsmálum landa sinna. Hann var einn stofnenda félags um kornflutninga árið 1940 og ritari þess frá 1943. Hann tók þátt í byggingu sjúkrahúss Árborgar og sat í fyrstu stjórn þess. Þá vann hann ásamt félögum sínum að byggingu samkomuhúss þorpsins. Ólöf var dóttir Einars Jónassonar læknis á Gimli og Jónínu Ingibjörgu Sigfúsdóttur. Hún lauk prófi frá Manitoba Normal School og gerðist kennari í Árborg.
