Björn Pétursson

ID: 17182
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1894

Björn Pétursson fæddist í Winnipeg 9. mars, 1894.

Maki: 2. september, 1935 Guðný Kristín Guðmundsdóttir f. í Manitoba.

Barnlaus.

Björn var sonur Péturs Guðmundssonar og Ingibjargar Björnsdóttur, sem vestur fluttu árið 1890. Björn ólst upp á Gimli, lauk þar miðskóla og hélt áfram námi í Winnipeg. Þaðan lauk hann kennaraprófi og kenndi árin 1920-1924. Settist þá aftur á skólabekk í Manitoba Agricultural College árið 1924-1928. Hann tók B.S.A. próf í Manitobaháskóla árið 1928 og varð svo M.A.S. 1929 og Ph.D 1950  frá University og Minnesota. Rannsakaði og skrifaði um jurtasjúkdóma. Foreldrar Guðnýjar voru Guðmundur Markússon og Ingibjörg Sigríður Finnsdóttir landnámsmenn í Árnesbyggð í Nýja Íslandi,