ID: 2818
Fæðingarár : 1866
Fæðingarstaður : Vestmannaeyjar
Dánarár : 1935

Jóhann P Jónsson Mynd FVTV
Jóhann Pétur Jónsson fæddist 6. október, 1866 í Vestmannaeyjum. Dáinn 15. desember, 1935 í Lethbridge í Kanada. Johann Petur Arnason vestra.
Maki: 27. febrúar, 1891 Sólrún Guðmundsdóttir f. 11. október, 1867 í Vestmannaeyjum, d. 8. mars, 1949 í Alberta.
Börn: 1. Sina 2. William 3. Nathan 4. Annie 5. Mary 6. Leonard 7. Ellen 8. Genenva 9. Lyman 10. Mabel 11. Ester
Jóhann fór vestur með móður sinni, Vilborgu Þórðardóttur, stjúpa og systkinum árið 1874. Sólrún fór vestur 1888. Þau bjuggu í Spanish Fork til að byrja með en flutt þaðan til Winter Quarters og bjuggu þar til ársins 1903 en þá fluttu þau til Raymond í Alberta, Kanada. Tveimur árum seinna fluttu þau til Taber.
