Guðrún Símonardóttir

ID: 17479
Fæðingarár : 1857
Dánarár : 1938

Guðrún Símonardóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu 17. júní, 1857. Dáin 2. júní, 1938 í Nýja Íslandi.

Maki: Jón Guðmundsson f. í Skagafjarðarsýslu 1863, d. 8. maí, 1950 í Geysirbyggð.

Börn: 1. Jónína Guðrún 2. Sigmundur f. 2. desember, 1892 3. Símon Sveinn.

Jón fór vestur 1883 til Winnipeg en Guðrún var við nám í Kaupmannahöfn þar sem hún lærði matreiðslu. Hún fór vestur 1889 til Jóns í Hensel þar sem foreldrar hans, Guðmundur Gíslason og Sigríður Símonardóttir bjuggu. Jón og Guðrún tóku land í Geysirbyggð árið 1902 en bjuggu þar aldrei heldur voru í Hvammi þar sem foreldrar Jóns bjuggu.