Guðrún Stefánsdóttir

ID: 17499
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1894

Guðrún Stefánsdóttir Mynd VÍÆ II

Guðrún Stefánsdóttir fæddist 5. ágúst, 1894 í Argylebyggð í Manitoba.

Maki: 2. júní, 1915 Ágúst Theodore Björnsson f. í Edinborg í N. Dakota 8. júlí, 1889, d. í Winnipeg 6. janúar, 1948. Dr. Ágúst Blöndal vestra.

Börn: 1. Harold f. 18. júní, 1917 2. Doris Marjorie f. 19. ágúst, 1921 3. Alvin Theodore f. 1. mars, 1924 4. Shirley Joann f. 19. ágúst, 1935.

Guðrún var dóttir Stefáns Péturssonar og Geirþrúðar Jónsdóttur í Argylebyggð.  Ágúst ólst upp hjá foreldrum sínum, fyrst í N. Dakota í 3 ár, þá í Portland, Oregon önnur 3 ár. Þaðan lá svo leiðin til Winnipeg. Þar gekk hann í grunnskóla og innritaðist eftir það í Manitoba Medical College þar sem kann lauk læknisprófi árið 1913. Hann var læknir í Lundar um skeið áður en hann fór til Evrópu í framhaldsnám árið 1921. Hann var í London, Edinburg, Glasgow og París áður en hann sneri aftur til Winnipeg þar sem hann starfaði  til æviloka.  Meir um Dr. Ágúst í Íslensk arfleifð að neðan.