Einar Vigfússon

ID: 2854
Fæðingarár : 1872
Fæðingarstaður : Vestmannaeyjar
Dánarár : 1933

Einar Vigfússon Mynd FVTV

Einar Vigfússon fæddist í Vestmannaeyjum 1. ágúst, 1872. Dáinn 21. nóvember, 1933. Einar Anderson í Utah.

Maki: 1893 Jónína Guðrún Þórarinsdóttir f. 7. mars, 1877 í V. Skaftafellssýslu. Dáin 13. mars, 1959. Nena Anderson vestra.

Börn: upplýsingar vantar

Einar flutti vestur til Spanish Fork í Utah árið 1892. Faðir hans, Vigfús Einarsson fór þangað 1888 og móðir hans, Guðrún Guðmundsdóttir fór 1889. Jónína fór vestur með ömmu sinni árið 1885, foreldrar hennar, Þórarinn Bjarnason og Brynhildur Jónsdóttir, og systkini fóru 1883.