María G Jónsdóttir

ID: 17587
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1896

María Guðný Jónsdóttir fæddist 11. september, 1896 í Hnausabyggð í Nýja Íslandi..

Maki: 17. júní, 1920 Helgi Jóhannsson f. í Árnesbyggð í Nýja Íslandi 6. mars, 1896. Helgi J Jóhannesson vestra.

Börn: 1. Emily Sigríður f. 6. maí, 1921 2. Grace Sigurrós f. 29. október, 1924 3. Sylvia Jónína f. 1. nóvember, 1927 4. Dolores Jóhanna f. 27. október, 1929 5. Marlene Helga f. 3. nóvember, 1934, d. 3 ára.

Helgi var sonur Jóhanns Jóhannessonar og Sigríðar Stefánsdóttur, sem vestur fluttu árið 1887 og námu land í Árnesbyggð í Nýja Íslandi. Þar hét Fagribakki og þar bjuggu þau alla tíð. Foreldrar Maríu voru Jón Björnsson Snædeld og Sigurrós Markúsdóttir, sem bjuggu í Breiðumýri í Hnausabyggð. Helgi stundaði fiskveiðar í Winnipegvatni og rak fiskverslun í Árnesbyggð. Bjó seinna á Gimli.