Sigríður J Samúelsdóttir

ID: 18197
Fæðingarár : 1848
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1923

Sigríður Jóhanna Samúelsdóttir f. í Dalasýslu 14. ágúst, 1848, d. í N. Dakota 16. desember, 1923.

Maki: 29. september, 1878 Bjarni Bjarnason fæddist í Strandasýslu  15. júní, 1848. Dáinn í Garðarbyggð í N. Dakota 26. september, 1901.

Börn: 1. Kristín f. 27. júní, 1879 í Strandasýslu 2. Guðbrandur f. á Íslandi 14. ágúst, 1880, d. 1938 í Grafton, ND 3. Guðlaug f. 14. ágúst, 1883 í skipi á Atlantshafi 4. Margrét f. 27. ágúst, 1886 4. Albert f. 17. janúar, 1889, tvíburi 5. Kristjana Anna f. 17. janúar, 1889, d. ársgömul 6. Kristjana Anna f. 22. mars, 1892.

Þau fluttu vestur til Kanada árið 1883, tóku lest frá Quebec til Pembina í N. Dakota. Þar beið Kristján, bróðir Sigríðar en hann flutti fjölskylduna til Garðar þar sem hann bjó. Hann flutti vestur árið 1878. Bjarni nam land suður af Garðar, byggði þar tveggja herbergja bjálkahús þar sem yngstu börnin fæddust.