Björn Runólfsson

ID: 2934
Fæðingarár : 1849
Fæðingarstaður : Vestmannaeyjar
Dánarár : 1932

Björn Runólfsson Mynd FVTV

Sigríður Sigvaldadóttir Mynd FVTV

Björn Runólfsson fæddist í Vestmannaeyjum 7. febrúar, 1849. Dáinn 27. ágúst, 1932. Kallaður Ben Runolfson í Utah en á dánarvottorð þar er hann skráður Bjorn Runolfsen.

Maki: 30. júní, 1878  Sigríður Sigvaldadóttir f. 14. ágúst, 1851 í Húnavatnssýslu.

Börn: 1. Matthildur f. 2. nóvember, 1878 2. Ingiríður (Ingrid Christine) f. 24. júlí, 1880, d. 2. ágúst, 1904. 3. Þórarinn Kristinn f. 26. apríl, 1885, d. 23. október, 1887 4. Edda f. 1887 sennilega á leiðinni yfir Atlantshaf.

Fluttu vestur til Spanish Fork í Utah frá Vestmannaeyjum árið 1887.