Sigríður Sigvaldadóttir

ID: 2935
Fæðingarár : 1851
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1939

Sigríður Sigvaldadóttir fæddist 14. ágúst, 1851 í Húnavatnssýslu. Dáin í Spanish Fork 16. janúar, 1939.

Maki: 30. júní, 1878 Björn Runólfsson fæddist í Vestmannaeyjum 7. febrúar, 1849. Dáinn 27. ágúst, 1932. Kallaður Ben Runolfson í Utah en á dánarvottorð þar er hann skráður Bjorn Runolfsen.

Börn: 1. Matthildur f. 2. nóvember, 1878 2. Ingiríður (Ingrid Christine) f. 24. júlí, 1880, d. 2. ágúst, 1904. 3. Þórarinn Kristinn f. 26. apríl, 1885, d. 23. október, 1887 4. Edda f. 1887.

Fluttu vestur til Spanish Fork í Utah frá Vestmannaeyjum árið 1887.