
Jarþrúður Runólfsdóttir Mynd FVTV
Jarþrúður Runólfsdóttir fæddist 21. ágúst, 1852 í Kjósarsýslu. Dáin 17. apríl, 1927 í Spanish Fork. Thrutha Erickson í Utah.
Maki: 30. desember, 1887 Eyjólfur Eiríksson fæddist í Rangárvallasýslu 26. febrúar, 1854. Dáinn 21. ágúst, 1908. Eyjolfur Erickson í Utah en í dánarvottorði í Spanish Fork er hann Ejyolifur Erickson.
Börn: 1. Ellenborg f. 18. október, 1888, d. 20. ágúst, 1889 2. Maria (Mary) f. 18. febrúar, 1890, d. 30. janúar, 1975 3. Noah Erastus f. 28. nóvember, 1891, d. 21. maí, 1892 4. Sigurveig (Sarah) f. 28. desember, 1892, dáin 24. apríl, 1974 5. Eiríkur f. 15. febrúar, 1895, d. 3. ágúst, 1922 6. Matthew f. 28. september, 1897, d. 23. maí, 1966.
Jarþrúður fór vestur til Spanish Fork í Utah árið 1887. Eyjólfur flutti vestur þangað árið 1882. Þau bjuggu í Spanish Fork.
