Ólína Kristjánsdóttir

ID: 3239
Fæðingarár : 1880

Ólína Ingveldur Kristjánsdóttir fæddist 31. maí, 1880 í Mýrasýslu.

Maki: 2. september, 1911 Gísli Jakob Benediktsson f. í Skagafjarðarsýslu 15. júlí, 1887.

Börn: 1. Bennetta Thelma f. 8. október, 1912, d. 1932 2. Kristín Guðrún f. 4. desember, 1914 3. Aðalheiður Pearl f. 27. janúar, 1916 4. Haraldur Ásgeir Jóhannes f. 29. október, 1926.

Ólína fór vestur árið 1900 með móður sinni, ekkjunni Kristbjörgu Jóhannesdóttur. Þær fóru til Manitoba og settust að á Gimli. Gísli fór til Vesturheims árið 1888 með foreldrum sínum, Benedikt Bjarnasyni og Guðrúnu Gísladóttur. Fjölskyldan settist að á Gimli í Manitoba. Þar kvæntist Gísli Ólínu og bjuggu þau á Gimli. Gísli var fiskimaður og smiður. Hann var áhugasamur um bæjarmál, sat í bæjarráði ein fjögur ár. Ólína sömuleiðis hafði áhuga á málefnum Gimlibúa, var alltaf í kvenfélagi Sambandssafnaðarins á Gimli, forseti þess um skeið.