Jón Jónsson

ID: 3262
Fæðingarár : 1861
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1943

Jón Jónsson fæddist í Dalasýslu 22. september, 1861. Dáinn í Mouse River byggð í N. Dakota 29. maí, 1943. Goodman vestra.

Maki: Ingibjörg Hjálmarsdóttir f. 12. september, 1870 í Barðastrandarsýslu.  Reykjalín vestra.

Börn: 1. Metta 2. Hjálmar f. 20. nóvember, 1897, d. 12. nóvember, 1956 3. Kristín (Christine) 4. Jóna (Yona) 5. Friðrika (Frederica) 6. Guðmundur (Mundie) f. 20. janúar, 1905, d. 19. júlí, 1965 7. Sakie f. 26. desember, 1906 8. Sveinn (Svein) f. 19. apríl, 1913, d. 20. nóvember, 1960.

Jón Jónsson fór vestur til N. Dakota árið 1881 með móður sinni, Helgu Eyvindsdóttur og hennar manni Helga Guðmundssyni. Þau settust að í Pembina sýslu en 1886 fóru Jón og Helgi í könnunarleiðangur vestur að Mouse River. Þar fundu þeir lönd og ákváðu landnám. Jón nam land og bjuggu hann og Ingibjörg á því til ársins 1936 en þá seldu þau og keyptu annað norður af Upham.