
Helga M Hallgrímsdóttir og Eiríkur Helgason með Kristvin. Mynd RbQ
Helga Margrét Hallgrímsdóttir fæddist 1. ágúst, 1874 í Árnessýslu. Dáin í Vatnabyggð 18. júlí, 1953.
Maki: 13. október, 1899 Eiríkur Ólafsson fæddist 15. janúar, 1876 í Skagafjarðarsýslu. Skráður Erik Helgason í Kanada.
Börn: Ólu upp 3 börn: 1. Ágústa Hallgrímsdóttir (systir Helgu) 2. Kristvin Helgason Sveinssonar f. 13. nóvember, 1904 3. Helga Erika Dalmann.
Helga flutti vestur til Winnipeg árið 1892 en foreldrar hennar, Hallgrímur Guðmundsson og Þórey Ingimundardóttir fóru til Ameríku árið 1888. Eiríkur fór vestur með foreldrum sínum og yngri bróður árið 1887 og bjuggu þau fyrst um hríð hjá Þorgrími Jónssyni sem bjó við Íslendingafljót í Nýja Íslandi. Engilráð var systir hans. Voru þar í þrjú ár en fluttu þá til Selkirk. Þangað kom Helga með foreldrum sínum árið 1893. Eiríkur og Helga fluttu í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1907 og námu land í Kandahar/Dafoe byggð.