Márus Jónasson

ID: 3527
Fæðingarár : 1869
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1935

Márus Jónasson fæddist 4. janúar, 1869 í Dalasýslu. Dáinn í Winnipeg 29. mars, 1935. Doll vestra.

Maki: Ingibjörg Brynjólfsdóttir f. 25. nóvember, 1878 í A. Skaftafellssýslu, d. 14. nóvember, 1918 úr spönsku veikinni.

Börn: 1. Jónas Casper f. 1898, d. 1918 2. Guðrún 3. Brynjólfur 4. Borgel Eyvindur 5. Kristbjörg 6. Sigríður Minerva 7. Katrín 8. Rósa 9. Gunnar 10. Benedikta 11. Kristín.

Márus flutti vestur til Winnipeg árið 1887 en Ingibjörg fór þangað árið 1889 með foreldrum sínum, Brynjólfi Jónssyni og Katrínu Magnúsdóttur. Brynjólfur nam land í Mikley og þangað kom Márus upp úr 1890. Hann og Ingibjörg byggðu þar á eigin landi.