Björg Jónsdóttir

ID: 3552
Fæðingarár : 1876
Fæðingarstaður : Snæfellsnessýsla
Dánarár : 1938

Björg Jónsdóttir fæddist í Snæfellsnessýslu 4. ágúst, 1876. Dáin 3. mars, 1938 í Vancouver.

Maki: Jón H Jónsson f. 10. ágúst, 1873 í Mýrasýslu, d. 5. júní, 1958 í Vancouver.

Börn: 1. Þorbjörg 2. Kristín.

Björg flutti vestur til Winnipeg árið 1885 með foreldrum sínum, Jóni Jónssyni og Þorbjörgu Guðmundsdóttur og systkinum. Þau settust að í Nýja Íslandi en fóru í Lundarbyggð árið 1902.  Jon H. Johnson var sonur Jóns Jónssonar og Sigríðar Jónsdóttur sem bjuggu á Grund í Mikley. Þar hófu Jon og Björg búskap og stunduðu jafnframt fisksölu við höfnina í Mikley. Þaðan fóru þau vestur til Vancouver.