Þorgils Árnason

ID: 3562
Fæðingarár : 1835
Fæðingarstaður : Hnappadalssýsla
Dánarár : 1905

Jóhanna Narfadóttir og Þorgils Árnason Mynd WtW

Þorgils Árnason fæddist í Hnappadalssýslu árið 1835. Dáinn í Winnipeg 25. desember, 1905.

Maki: Jóhanna Narfadóttir f. árið 1830 í Hnappadalssýslu.

Börn: 1: Björn f. 1863 2. Magnús f. 1864 3. Finnbogi f. 1866. Elstur sona þeirra var Þorgils Guðbrandur f. 1853. Mun ekki hafa farið vestur.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883, Björn reyndar árið áður.  Þorgils stundaði lækningar fyrst um sinn í Winnipeg en flutti seinna norður í Siberíu í Lundarbyggð. Bjó þar eitthvað en flutti svo seinna til baka til Winnipeg.