
Daníel Sigurðsson Mynd WtW

Kristjana Jörundsdóttir Mynd WtW
Daníel Sigurðsson fæddist í Mýrasýslu 22. júlí, 1845. Dáinn í Lundar 12. maí, 1940.
Maki: 24. júní, 1869 Kristjana Jörundsdóttir f. 30. september, 1845 í Snæfellsnessýslu, d. 3. nóvember, 1933.
Börn: 1. Danelía Kristjana f. 28. september, 1871, d. 20. ágúst, 1934 2. Jörundur Hergeir f. 12. janúar, 1873, d. 28. janúar, 1968 3. Þórður Kristján f. 27. desember, 1873, d. 5. október, 1961 4. Sigurður f. 12. júlí, 1876 5. Margrét Dagbjört f. 20. nóvember, 1877 6. Kristín Anna f. 31. maí, 1879 7. Salóme Sigríður f. 10. júní, 1881 8. Hjálmur Frímann f. 12. október, 1882 9. Jensina Júlía f. 13. júlí, 1884.
Daníel flutti vestur til Winnipeg í Manitoba með fjölskyldu sína árið 1894. Margrét dóttir hans fór vestur þangað árið áður og Þórður Kristján árið 1897. Daníel nam land í Lundarbyggð og bjó þar alla tíð.
