Kristján Guðmundsson fæddist í Snæfellsnessýslu 11. ágúst, 1834. Dáinn 14. október, 1899.
Maki: 28. október, 1858 Ragnheiður Halldórsdóttir f. í Ísafjarðarsýslu árið 1822. Barnsmóðir: Ragnhildur Kristín Bjarnadóttir f. í Húnavatnssýslu 22. ágúst, 1850, d. 1934.
Börn: Með Ragnheiði; 1. Árni f. 1859, d. 1869 2. Guðmundur Halldór f. 1863, d. 1866. Með Ragnhildi Kristínu : 1. Guðbjörg f. 1875 2. Kristjana f. 1877 3. Guðmann Ágúst f. 1879 4. Guðmundur Árni f. 1880, d. úr berklum 1901 5. Bjarni f. 1881 6. Björnína Kristín f. 1885 7. Guðbjartur Theodór f. 1888.
Í frásögn Kristjáns skjalfest 21. maí, 1889, kemur fram að Ragnheiður gat ekki eignast fleiri börn og með samþykki hennar, samþykkti Ragnhildur Kristín að ganga með og fæða börn Kristjáns.
Hópur Kristjáns í vesturförinni taldi 10 manns því með vestur fóru Sigríður Salómonsdóttir, vinnukona hjá Kristjáni og Jósefína, yngri systir Ragnhildar. Þau fóru fyrst til Winnipeg þar sem þau heyrðu vel talað um land sunnan landamæranna í N. Dakota. Þangað flutti hópurinn og bjó alla tíð.
