ID: 3878
Fæðingarár : 1837
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Benedikt Oddsson fæddist í Dalasýslu 23. desember, 1837.
Maki: 1) Ingibjörg Þorkelsdóttir f. 1828, þau skildu 2) Ólína K Andrésdóttir f. 26. október, 1857, d. í Toronto 12. janúar, 1925.
Börn: Með ingibjörgu 1. Pétur f. 1858 2. Lárus f. 1860. Með Ólínu 1. Ólafía Oktavía f. 24. október, 1880 2. Ónafngreind stúlka f. vestra. Giftist J. L. Law í Toronto.
Benedikt fór vestur um haf einsamall árið 1882. Óljóst með vesturför Ólínu og dvalarstaði hennar og Benedikts vestra. Hún var skráð til heimilis hjá dóttur sinni í Toronto daginn sem hún dó.
