ID: 4014
Fæðingarár : 1834
Fæðingarstaður : Kjósarsýsla
Dánarár : 1908
Jón Gíslason fæddist í Kjósarsýslu 5. október, 1834. Dáinn 14. júlí, 1908 í Mountain í N. Dakota. Dalmann vestra.
Maki: 1) Solveig Jónsdóttir f. í Dalasýslu 14. september, 1835. 2) Kristín Sturlaugsdóttir f. 21. apríl, 1859 í Dalasýslu, d. 19. maí, 1933.
Börn: Með Solveigu 1. Jakobína f. 25. nóvember, 1872, d. í Blaine í Washingtonríki 30. ágúst, 1961. 2. Þuríður. Solveig átti Helga Helgason f. 1860 frá fyrra hjónabandi.
Jón fór vestur til Ontario í Kanada árið 1874 og var þar til ársins 1876 en þá kom Solveig vestur með Helga og Jakobínu. Fjölskyldan settist að í Nýja Íslandi. Þaðan lá svo leiðin í Thingvallabyggð í N. Dakota um 1880.
