Málfríður Jónsdóttir

ID: 19597
Fæðingarár : 1863
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1943

Málfríður Jónsdóttir fæddist 27. maí, 1863 í Dalasýslu. Dáin 20. september, 1943.

Maki: Elís Einarsson fæddist í S. Múlasýslu árið 1860. Dáinn í N. Dakota árið 1923. Eastman vestra.

Börn: 1. Halldóra 2. Sigríður 3. Elín 4. Philip 5. Ingólfur 6. Brandur.

Elís fór vestur um haf árið 1887 og settist að í Grafton í N. Dakota. Málfríður fór ein vestur sama ár en faðir hennar, Jón Brandsson hafði flutt vestur árið 1878 og sest að í Garðarbyggð í N. Dakota. Elís og Málfríður bjuggu alla tíð í Grafton og mun Elís hafa starfað mikið að safnaðarmálum og verið virkur í íslenskum félagsskap þar í bæ.