Magnús G Guðlaugsson

ID: 4210
Fæðingarár : 1880
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1961

Magnús G Guðlaugsson Mynd VÍÆ I

Magnús Guðmundur Guðlaugsson fæddist 22. ágúst, 1880 í Dalasýslu. Dáinn í Bresku Kolumbíu í Kanada 30. desember, 1961.

Maki: 21. nóvember, 1906 Ólína Jónsdóttir f. 10. febrúar, 1877 í Rangárvallasýslu, d. 2. febrúar, 1956.

Börn: 1. Óskar Allan 2. Leonard Skúli 3. Bryan Woodrow 4. Clarence Edwin 5. Marta Violet 6. Elma Pearl 7. Ethel Margaret.

Magnús fór vestur til Manitoba með foreldrum sínum árið 1883. Þau settust að á Gimli. Magnús og Ólína fluttu til Saskatchewan árið 1906 og bjuggu á landi sínu í Guernsey til ársins 1911 en það ár námu þau land við Peace River í Alberta og bjuggu þar til ársins 1948. Þá fluttu þau til White Rock í Bresku Kolumbíu.