ID: 4285
Fæðingarár : 1846
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1931
Sólborg Guðmundsdóttir fæddist í Dalasýslu 2. ágúst, 1846. Dáin 22. október, 1931 í Lundar, Manitoba.
Maki: Ingimundur Guðmundsson f. 25. janúar, 1851 í Dalasýslu, d. í Lundarbyggð 26. júlí, 1928.
Börn: 1. Þorlákur Jón f. 1878, fór ekki vestur 2. Guðmundur f. 9. júlí, 1879 3. Júlíus f. 16. mars 1881 4. Ingimundur f. 30. nóvember, 1885 5. Ingiberg f. 16.mars, 1887 6. Rafn.
Þau fóru vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888, Ingiberg fór vestur þangað árið 1894. Þau settust að í Ísafoldarbyggð í Nýja Íslandi edn hrökkluðust þaðan árið 1903 og fóru í Lundarbyggð. Námu þar land og bjuggu. Síðustu árin bjuggu þau í Lundar.
