Magnús Gíslason

ID: 4300
Fæðingarár : 1854
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1932

Magnús, Þórdís, Jóhann og Guðríður Mynd WtW

Magnús Gíslason fæddist 18. mars, 1854 í Dalasýslu. Dáinn 22. febrúar, 1932.

Maki: Þórdís Magnúsdóttir f. í Barðastrandarsýslu árið 1856, d. 1. febrúar, 1929.

Börn: 1. Jóhann f. 15. ágúst, 1887 2. Guðríður f. 26. september, 1888 3. Jens f. 1895.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893 þar sem þau voru í tvö ár. Þá fluttu þau í Lundarbyggð og bjuggu þar á sínu landi. Fluttu seinna í Lundar.