Samúel Eiríksson

ID: 4339
Fæðingarár : 1817
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1896

Samúel Eiríksson fæddist í Dalasýslu 15. september, 1817. Dáinn í N. Dakota 4. maí, 1896

Maki: Guðlaug Brandsdóttir f. 30. maí, 1823 í Dalasýslu, d. 1894.

Börn: 1. Ingveldur f. 13. ágúst, 1845, d. 14. ágúst, 1923  2. Guðrún f. 6. ágúst, 1847, d. 1. júlí, 1928  3. Sigríður Jóhanna f. 11. ágúst, 1848, d. 16. desember, 1923 4. Margrét f. 23. mars, 1850 5. Kristján f. 18. desember, 1854, d. 2. október, 1947 6. Albert f. 15. september, 1857, d. 31. janúar, 1930.

Samúel og Guðlaug fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883 ásamt börnum sínum Guðrúnu og Albert. Fóru þaðan strax í Garðarbyggð í N. Dakota en Kristján sonur þeirra hafði sest þar að árið 1880. Öll börn þeirra fluttu vestur.