ID: 12565
Fæðingarár : 1830
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1909
Gunnlaugur Pétursson fæddist á Hákonarstöðum í N. Múlasýslu 19. september, 1830. Dáinn í Minnesota 4. maí, 1909.
Maki: Guðbjörg Jónsdóttir f. í N. Múlasýslu 21. október, 1836, d. 21. mars, 1898.
Börn: 1. Jón f. 1860 2. Vigfús f.1861 3. Ingibjörg f. 1863 4. Kristín f. 1868 5. Karólína f. 1881 6. Elísabet f.1877. Með þeim vestur fór fósturbarn, Guðbjörg Runólfsdóttir 6 ára.
Fóru vestur árið 1873 til Wisconsin. Voru hjá norskum bónda í Iowa County til vors 1875. Fluttu til Minnesota árið 1875 og tóku land í Lyonbyggð. Þar hét Hákonarstaðir. Bjuggu þar alla tíð.
