Guðrún Hjálmarsdóttir Reykjalín fæddist 12. október, 1881 í Barðastrandarsýslu. Dáin í N. Dakota 25. nóvember, 1920.
Maki: Magnús Davíðsson f. 30 maí, 1862 í Húnavatnssýslu, d. í N. Dakota 27. október, 1949. Magnus Davidsson vestra
Börn: 1. Sigurbjörg Anna f. 1909 2. Þórdís f. 31. maí, 1911 3. Halldór f. 1913 4. Kristín Sigurrós f. 1915 5. Jón Vilhelm f. 1916 6. Hjálmar Matthías f. 1918.
Magnús flutti vestur til Kanada árið 1876 með foreldrum sínum, Davíð Jónssyni og Þórdísi Guðmundsdóttur sem fóru til Nýja Íslands. Þaðan lá svo leið þeirra í Eyfordbyggð í N. Dakota. Magnús var bóndi í Montrose hreppi í Cavalier sýslu til 1920, flutti þaðan í Garðarbyggð og seinna í bæinn Edinburg. Guðrún Hjálmarsdóttir var dóttir Hjálmars Friðrikssonar og Mettu Pálsdóttur sem fóru vestur úr Barðastrandarsýslu árið 1886.
